....áður en það verður að minningu.

Njóttu augnabliksins...

17.04.2007 16:54:15 / solla

Völundur og páskarnir

Halló halló krakkar mínir :)

það hefur enginn skrifað hér lengi lengi lengi svo ég ákvað að koma með eina færslu. Smá update á okkur í Sixtjiks :)

Arna, Sjöfn og Vala hafa verið í prófum síðustu vikur - gaman saman! Sjöfn og Vala eru síðan að fara að útskrifast úr viðskiptafræði í HR. Ég fer fram á gott útskriftarpartý :)

Ragga er í Sverige að læra og er svaka dugleg :)

Ég er í skólanum.

L8ter


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 13:36:03 / solla

Til hamingju með afmælið Ragnheiður Blómarós :)

Góðan daginn allan daginn :)

Ég vil byrja á því að óska henni Ragnheiði okkar innilega til hamingju með daginn 8)!!! 25 ára er stór og ábyrgðamikill aldur! Mikið er ég fegin að vera ekki komin í þennan hóp ;)

Ég vona Ragga mín að þú hafir það sem best í dag og að hann Andri stjani við þig frá morgni til kvölds. Því þegar maður á afmæli þá á að dekra við mann og svo ræður maður auðvitað öllu ;)

Það eru ekki stórar fréttir af klakanum, snjórinn ákvað að koma aftur en í þetta skipti tók hann sólina með sér. Sem var mjög gott múv! ég lifi bara í þeirri von að sumarið fari að koma...allavegana páskarnir :P en maður má alltaf láta sig dreyma!

Bestu kveðjur til Svíþjóðar :D 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 15:20:09 / solla

Uppgjör ársins :)

Sælar pæjur og takk fyrir síðast :)

Eins og áður þá lokuðum við þessu ári með stæl og rúmlega það! Smá upprifjun frá deginum:

  • Byrjað á Nonna enda smá þynnka hjá sumum 8) ...rónar á staðnum!
  • Farið í Ríkið
  • Bláa Lónið - þarf varla að segja meira. Ekkert smá nice að fara þangað og í þessu blíðviðri! Gufan kom líka sterk til leiks ;) Mjög rómantískt hjá okkur þarna í myrkrinu með öllum útlendingunum!
  • Tapas - kjúklingur og naut gott + kartaflan :D
  • Heim til systur Röggu - hellt í sig og fengum mjög góðan rétt sem Ragga útbjó á skottíma - seig stelpan!  8|
  • Síðan þarf að endurnýja dansgólfið á Oliver - say no more :haha:

Snilldardagur í alla staði - ég er strax farin að hlakka til næsta uppgjörs!!!

Ég vil síðan óska Valgerði innilega til hamingju með daginn í gær - hlakka til að klára ópalflöskuna á laugardaginn ;)

Luv u!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 22:19:12 / solla

Árshátíð Sixtjiks 30. desember 2006 :)

Hæ hó og gleðilega hátíð,

Það er búið að panta borð á Tapasbarnum n.k. laugardag kl. 20 :D - gott að vera íhaldssamur ;)
Síðan verður lagt af stað úr bænum kl. 14.30...og ferðinni heitið í Bláa Lónið :) spurning hvort við getum ekki reddað 6 manna bíl..? ég skal allavegana tékka heima hjá mér!

Hlakka til að sjá ykkur skvísur á laugardaginn.

Farin á meltuna ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 17:11:44 / solla

Ég er búin :)

Loksins loksins loksins :D

Þá er ég loksins búin í öllum prófum og verkefnum :D:D:D ég er farin heim að dansa stríðsdansinn!! 8)

L8ter dog


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 17:37:18 / vala

"If you can dream it - you can do it!"

Walt Disney stórvinur minn segir það allavega! Þetta er ég búin að læra á því að sitja í marga marga marga klukkutíma og fylla inní bók sem að heitirLearning to Lead. Vinnubók sem að á að skila á miðvikudaginn næsta, ekki á morgun heldur hinn! Þessi bók er líka svo amerísk að það hálfa væri hellingur!!! Frekar yfirborðskennd um sjálfsskoðun og hvað ég geti nú gert til að verða betri leiðtogi? Ef ég er það fyrir, veit ekki..? Ok hún er ekki alslæm en aðeins of stór biti á köflum... Og af því að ég er skipulagðasta manneskjan í bransanum (eða ekki) er ég að klára á 3 dögum það sem að ég á að vera búin að vera að gera í 3 mánuði.... Ég get svo svarið það að ég er að láta lífið hérna á lesstofunni... Hef það samt ekki í mér að fara heim, því þar geri ég ekki neitt!! Þannig að ég skrifa í bókina í 10 mínútur... netið í 20... skrifa í 5 mín... netið í 15.... skrifa, blogga, myspace, skrifa.... og þannig heldur þetta áfram.. Verð til 4 í nótt með þessu áframhaldi 8| Hvar er aginn??
Okei ætla að láta mig dreyma um að þessi bók verði búin í kvöld/nótt og þá hlýtur það að gerast, ef Walt er ekki að ljúga að okkur!! :!:
En skvísur þessi síða er að láta lífið! Stelpur við erum ekki að standa okkur hahahah.... Hvernig er svo með árshátíðina okkar? Hvenær verður hún og hvaða þema... ??
Hvernig væri svo að þið sem að dettið óvart inn á þessa síðu mynduð kommenta - mér er slétt sama hvað! Og mér er líka sama hvort við þekkjum ykkur eða ekki... Bara svona til að segja hæ :D
L8er


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 20:47:48 / solla

Ein gömul og góð...

Ég mátti til með að skella inn einni gamalli færslu frá DK, sumarið 2004 :D - njótið vel!

Hallo hallo0 Thad er hægt ad segja ad thad sé búid ad vera nóg um ad vera hjá okkur nunnunum undanfarnar vikur! og loksins er sólin farin ad láta sjá sig svo madur tímir eiginlega ekki ad sitja inni á einhverju sveittu netkaffi med einhverjum ógisslegum habbalöbbum sem reykja ofaní mann thegar madur getur bætt á rodann og í freknusafnid!

Nóg um thad hvar á ég ad byrja? ....fall, strætó, skadestuen, röntgen, hækjur, ibúfen, gestir, túttusviti, on the road again, schödder uppá bäk, Anton, Stína standpína, Nyhavn, Tívolí, gardpartý, Rådhuspladsen, kiss kiss, Mr.lengi í sturtu, ævintýri á flugvellinum og ad sjálfsögdu John!

Til ad gera langa sögu stutta thá datt ég á leidinni í strætó, fannst thetta samt ekki fyndid fyrr en 4 klst. eftir atvikid ekki nema von, thar sem ég var varla búin ad opna augun! Ég heyrdi ad strætóinn var ad koma og sá fram á ad ég mundi missa af honum svo ég byrjadi ad hlaupa, ákvad sídan ad hætta thví og datt thá bara skyndilega fram fyrir mig! don´t ask - en ég vard ad fara á skadestuen og í röntgen og læti! Haltradi um alla verzlunarmannahelgina og var fyrst med eina hækju! en thad er alltaf hægt ad hlægja ad thessu 0 haggi? en ég er öll ad koma til!

Á midvikudaginn byrjadi lidid svo ad hrúgast inn...Hédinn var fyrstur aka Anton, sídan komu kaddlarnir their Dóri og Ómar, hressir på kanten med JLo á fim. og svo komu Kristín og Íris á fös! Nóg af fjöri!

Á föstudaginn var svo farid í partý med tóma bjórkassa (sæti) til Glediklúbbsins handan vid götuna, thad var eins og von var á: grídarleg stemming! Kíkt á Ideal og Paypaya! Mikid var um túttusvita eda Boobiesweat svo Hédinn tók thad ad sér ad therra hann, thó vid misjafnar undirtektir 0 En vá hvad thad var fyndid! Vid thökkum bara fyrir okkur!

Á laugardaginn var svo gardpartý hjá nunnunum og thar mættu allflestir held ég bara...og sídan átti ad fara á Ideal bar, svona Hverfis eda Vegó DK - thad var eitthvad verid ad misskilja thad svo nokkrir mættu bara hressir á Rådhuspladsen! og áttu sér enga undankomuleid thadan vegna leigubílaleysis. En Ragga gat hlegid endalaust af thví á sunnudaginn...thegar Séra Frank sá um ad ræsa lidid og koma thví misfersku útí sólina!

Thad er ekki hægt ad segja annad en ad thessi helgi hafi verid frá upphafi til enda MJÖG GÓD! djamma djamma TÚTTUSVITI! Ég vil líka thakka Hédni fyrir ad koma öllum varningnum heim fyrir mig 0 thú bjargadir mér alveg 0 og audvitad Dóra fyrir jakkana 0

Ég kved ad sinni, Rósin skilar kvedju hún er eitthvad ad mixa heima 0


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 09:39:17 / solla

Mikil menningarhelgi að baki!

Góðan daginn góðir hálsar :) Það er óhætt að segja að ég hafi drukkið mig alla þá menningu sem varð á vegi mínum s.l. helgi! Ég fór á Mýrina á laugardagskvöldið sem var hreint út sagt geðveik!!! og algjörlega must seee mynd! Á sunnudaginn fór ég síðan í íslensku óperuna að sjá Brottnámið úr Kvennabúrinu eftir Mozart stórvin minn ;) Í kvöld er síðan hittingur hjá okkur, en við höfum ekki hist allar saman lengi lengi...:D Ég verð að þjóta því ég er að fara á Akranes - NÚNA. L8ter dogs

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 09:22:53 / sjofn

Er bara aldrei laus tími?!?

Ég veit ekki hvernig þetta líf er. Tíminn bara flýgur áfram, hraðar og hraðar með hverjum deginum held ég... Oft hefur verið sagt að tíminn líði hratt þegar gaman er en hægt þegar manni leiðist. Ekki skil ég þá kenningu því miðað við hana þá er alltaf gaman hjá manni því eldri sem maður verður:$ Leiðist manni þá alltaf sem krakki þegar manni finnst vika heil eilífð en núorðið finnst mér alltaf vera að koma helgi.

Annars fórum við Vala ásamt viðskiptafræðinemum HR í vísindaferð og októberfest á föstudaginn, þvílíka fylleríið og fjörið á okkur. Þvílíkur fjöldi!!!! Útistemmingarfílingur þar sem ég þurfti víst að sætta mig við kamar á meðan Októberfestinni stóð mér til mikillar skelfingar... en ég geymdi bara pjöttuð dömuna fyrir utan kamarinn;) Við tók Vegamót en Áslaug var svo góð að ná í okkur þar sem opnaðist flóðgátt á himnum og rigningin streymdi niður.
Fór svo upp í sveit til Tryggva og Sonju í svakalega skemmtilegt partý og mat, vorum 14 eða 15 manns. Mikil hausleysa í gangi hjá mér það kvöld en snilldarkvöld í alla staði þar sem ýmsir drykkir voru smakkaðir enda var þema kvöldsins (prófum nýjar áfengistegundir eða drykki). Kúrði svo í hlýju hálsakoti um nóttina, algjörlega búin á því eftir allt djammið og drykkjuna8|

En hvað er að frétta af stelpunum, er bara aldrei tími til að hittast? Þessi skóli virðist taka allan manns tíma en þannig á sjálfsagt háskólalíf að vera8) Er eitthvað plan um helgina hjá dömunum?
Haldin áfram að læra í bili;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 08:36:28 / sjofn

Craaazzzy að gera!

Enn einn föstudagurinn, sit í verðmatstíma og get bara ekki haldið einbeitingu. Þjáist af gríðarlegu eirðarleysi akkúrat núna, langar helst að fara í Laugar og hamast til að fá útrás8) Ég trúi því varla að 7. viku skólans sé að ljúka, próftaflan kom inn í gær sem segir mér að það styttist í lokapróf. Tilhugsunin um það hræðir mig þar sem ég veit að það er fullt af verkefnaskilum eftir sem gerir það að verkum að næstu vikur verða sjálfsagt crazy. 8|
Annars er lítið að frétta af okkur skvísunum, jú við hittumst næstum aldrei útaf annasömum tíma sem er algjör synd.. Ég býð ekki í þetta þegar börnin verða komin til, þá eigum við sjálfsagt eftir að hittast enn sjaldnar. Nema að við verðum samstíga og eignumst þau bara á sama tíma;)
Helgin hjá manni mun að mestu leiti fara í lærdóm þar sem ég er að fara í 50% lokapróf í Viðskiptalögfræði en svo er svo sem aldrei að vita hvort hægt verður að draga mann í einhverja tóma vitleysu. Ég er bara ógeðslega þreytt, lá andvaka í nótt. Gat svo sem sjálfri mér um kennt þar sem ég svaf fram á hádegi á fimmtudag þar sem ég var alveg búin eftir nokkurra daga törn í skólanum.
Jesús ég get ekki fylgst með í tímanum núna, veit einhver um góðar einbeitingartöflur??
Hvenær ætlum við sixtjiks sem erum á landinu annars að hittast??
Eigið góða helgi ladies og farið vel með ykkur;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 18:20:25 / vala

Hvað er að frétta??

... við erum að kafna úr dugnaði við að skrifa á þessa síðu 8|
Hef nú ekki mikið merkilegt að segja en langaði eiginlega bara mest að koma með nýja færslu... kannski kominn tími á það :lol: Helgin búin að vera rosa fín, ákvaða að taka bara rólegt föstudagskvöld og nýta gærdaginn í lærdóm og það var heldur betur gert!! Mætt uppí skóla kl 11 (snemma á mínum mælikvarða, ekki mikil morgunmanneskja) og var til hálf sjö - þetta er afrek hahaha...
Hittumst svo aðeins stelpurnar í gærkvöldi í smá hvítvín og spjall, heitar umræður í gangi um menntakerfið og kvennréttindabaráttu :o Nenni samt ekkert að fara útí þær umræður hér :!:
Gyða skvís mætti svo hress á svæðið með Gajol flösku við hönd 8) Hvítt Gajol... og omg þvílíkur vibbi (en gerði samt sitt gagn). Mæli ekki með því! Þetta er meira svona eins og að borða tannkremstúbu en að taka staup :S Svo var auðvitað farið í bæinn, bara þetta venjulega :haha:
Er svona að mana mig uppí það að fara út og þrífa bílinn minn, er ekki duglegasra manneskjan í þeim málum. Betra að múta brósa í það... En það er nú svo gott veður að maður lætur sig kannski hafa það :lol:
En bæ í bili, er samt að spá hver nennir að lesa svona blogg??? Bloggsíður eru svoldið magnað fyrirbæri... vagnaveltur og ekki vangaveltur um lífið og tilveruna, eiginlega meira svona dagbækur. Af hverju er maður að segja fullt af fólki (sem btw maður þekkir örugglega í flestum tilvikum ekki neitt) frá lífi sínu og sinna??


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 13:40:22 / solla

Robert Williams :)

...já hann er flottur! - það er eitt sem verður ekki tekið af honum. Það voru reyndar vangaveltur um það hvort hann væri ekki bara nörd því hann er svo mikill töffari. Hann er kominn yfir það að vera töffari og orðinn nörd :D

Lundúna ferðin var mjög skemmtileg í alla staði, auðvitað stóðu tónleikarnir hjá Róberti uppúr sem voru á föstudagskvöldið. Ca. 70.000 manns komnir saman til þess eins að hylla þennan mann, syngja með og skemmta sér :) Magnað að syngja með 70.000 manns Angels og auðvitað öll hin lögin líka. Við fengum gott veður og það kom ekki einn rigningardropi! Héðinn hélt uppi góðu tempói á leiðinni í lestina og komumst við því með lest nr. 2 tilbaka! Við styttum okkur leið og tókum framúr ca. 2000 manns ;)

Þetta var stórgóð ferð og lítið gert af því að slappa af :) Við Héðinn fórum á We will rock you, söngleikur með Queen lögum - mjög skemmtilegt og það var nánast fullt útúr dyrum, sem mér finnst magnað þar sem þessi söngleikur hefur verið sýndur sex sinnum í viku s.l. 5 ár eða eitthvað álíka :)
Á sunnudaginn fórum við síðan í London Eye og þar voru teknar vel útpældar myndir ;) 

Nú er ég hætt þessu rugli - vildi bara deila því með ykkur hvað Robbie var geðveikur :) Ég ætla samt að biðja ykkur um að kommenta ekki svona mikið, ég var að fá e-mail frá blog.central þar sem þeir sögðu að þið hefðuð sprengt kommenta kerfið - so hold your horses :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 15:57:52 / solla

Takk fyrir mig :)

Kominn tími á smá update :)

Ég vil byrja á því að þakka ykkur kærlega fyrir afmælisgjafirnar :D Ég er rosa ánægð með þær!!!

Nú styttist óðum í Robbie Williams tónleikana og eru þeir eftir rétt rúma viku! Vá hvað tíminn er fljótur að líða! En við Héðinn förum út á þriðjudaginn og komum heim á mánudagsmorgun 8) ég reikna fastlega með því að það verði kíkt í H&M...skóbúðir, farið á kaffihús og kannski farið í the London Eye! Ég get einfaldlega ekki beðið en það er nóg að gera þangað til..við erum t.d. að fara í leikhús í kvöld á "Viltu finna milljón" í Borgarleikhúsinu. Svo á morgun eru réttir í sveitinni og ætlum við að fara í þær, það verður eflaust mjög gaman, Héðinn hefur aldrei farið í réttir ;) Við ætlum nú bara að vera í eina nótt, því við erum ekki búin að vera heima sl. tvær helgar. 

Síðustu helgi fórum við uppí sumarbústað með Turtles hópnum hans Héðins :) það var rosalega gaman, á föstudagskvöldinu grilluðum við Börger og drukkum bjór. Kíktum í pottinn og já spiluðum kana - ég vann að sjálfsögðu kanann. Þeir sem vel til þekkja vita að ég og Valgerður spiluðum kana í 4F á sínum tíma ;) Kani 2000!!  Það voru skemmtilegir tímar :D hjá Ólafi dagsins...
Á laugardeginum fórum við síðan í dagsferð í Þjórsárdal, skoðuðum Stöng sem er landsnámsbær frá 1100 og fórum svo að Háafossi. Borðuðum mikið nesti, drukkum rauðvín og tíndum risa krækibær :) Um kvöldið vorum við síðan með "Racklett" og gátum setið úti og eldað. Frábær helgi!!

Magni síðan kominn áfram í Rockstar!! Ekkert smá flott hjá stráknum "okkar"!!! við Íslendingar stöndum saman þegar við þurfum ;)

Bið að heilsa í bili - góða helgi :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 10:06:45 / sjofn

31. ágúst 2006

Afmælisbarn dagsins er engin önnur en Solla sæta:haha: Haldið þið ekki að þessi yndislega vinkona sé 24 ára í dag.VEIveivei :)

Elsku Solla, til hamingju með afmælið. Þú færð alla vegana þetta fína veður í tilefni dagsins og vonandi skemmtir þú þér vel það sem eftir lifir;) Njóttu dagsins í botn!!8)

Knúsar og kossar

Þín vinkona,
Sjöfn Eva:)



» 6 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 15:45:40 / solla

Gamlir tímar v.s. nýjum

Ég var að keyra heim í gær og tók þá eftir lítilli rauðri bjöllu (bíl) við hliðiná mér. Alltí góðu með það sosum, ökuþórinn var síðan eldgamall maður -hann hefur eflaust verið eldri en sólin!! Þegar betur var að gáð sá ég að það var lítill strákur "laus" aftur í...hann hefur verið svona 4ra ára. Þetta hefur líklegast verið langafi stráksins, ég sá að þeir spjölluðu mikið saman og alltaf var krakkinn laus, hlaupandi um aftur sætið og horfandi á bílana í kring. Mér var þá hugsað um þegar ég var lítil telpa, þá var ekkert rosalega algengt að fólk beltaði sig og hvað þá börnin. Nú sem betur fer er fólk farið að nota bílbelti í meira magni og vonandi fer banaslysum í umferðinni að fækka. ...
Nú er öldin orðin önnur og í síðustu viku, ég var að rölta mér yfir í Kringlu (mollið) í hádeginu og labbaði þá framhjá stórum jeppa. Í bílnum sátu tvö börn afturí í barnastólum og hafa ekki verið mikið eldri en 3 ára. Ég hefði aldrei tekið eftir þessum bíl nema að tónlistin sem kom frá honum var engin smá. Það var bara eins og ég væri komin á tónleika hjá Útvarpi Latabæjar! Þá hefur foreldri barnanna þurft að skreppa inn í Kringlu og þótt of mikið vesen að taka börnin með svo foreldrið hefur hækkað duglega í græjunum, læst bílnum og hlaupið inn í  Kringlu...ég veit ekki alveg hvort ég hefði skilið börnin mín eftir úti á bílaplani við Kringluna með útvarpið í botni. Ég held t.d. að fólk hefði ekki gert þetta hérna áður, enda var Kringlan ekki til þá 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Hitt og þetta